Á hótelinu eru 19 uppábúin herbergi, öll með sér baðherbergi.
Töluverður breytileiki er á stærð þeirra, í boði eru allt frá eins manns herbergi upp í þriggja manna herbergi. Í boði er að bæta við barnarúmi (< 2 ára), inn í tveggja og þriggja manna herbergin, gestum að kostnaðarlausu.
Í öllum okkar herbergjum er boðið upp á eftirfarandi:
- Ókeypis internettengingu
 - Sér baðherbergi með sturtu

 - Sjónvarp
 - Borð og stól
 - Hárblásara
 - Te- og kaffisett
 
Öll okkar herbergi eru reyklaus.